07.04.1930
Neðri deild: 73. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1714 í B-deild Alþingistíðinda. (2360)

238. mál, útvarp

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Hv. 2. þm. G.-K. er strax farinn að koma með hótanir um að tefja þetta mál með öðrum hætti, ef þessi tilraun þeirra íhaldsmanna til að fá það tekið af dagskrá heppnast ekki. En þetta er ekkert nýtt, þótt slík hótun komi frá Íhaldsflokknum. Þegar eitthvað á að gera almenningi í landinu til hagsbóta, sem komið getur við hagsmuni kaupmannanna, þá neyta þessir menn ávallt allra hugsanlegra ráða til að koma þeim málum fyrir kattarnef. Annars skilst mér, að hv. minni hl. hafi lýst yfir, að hann sé á móti málinu, og veit þá ekki, hvað hann. á að gera við frekari frest til umhugsunar.