09.04.1930
Neðri deild: 75. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1752 í B-deild Alþingistíðinda. (2375)

238. mál, útvarp

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Ég sé ekki ástæðu til að ræða þetta mikið lengur. Ég skal aðeins svara fyrirspurnum hv. 1. þm. Skagf. Hann spurði um, hver laun útvarpsráðið ætti að hafa. Laun þess hafa ekki verið ákveðin enn, en ég hygg, að laun þess verði ekki svo mikil, að það skipti miklu máli. — Viðvíkjandi fjölgun í því er það að segja, að mér er ekkert kappsmál, að mönnum sé fjölgað í því. En að það var lagt til í frv., stafar af eindreginni ósk frá prestum um að mega hafa einn mann í útvarpsráðinu. Þótti mér þá ekki óeðlilegt, að kennarar fengju sama rétt. Það, sem ég legg aðaláherzluna á í þessu frv., er einkasala á útvarpstækjum, til þess að fyrirbyggja sölu á úreltum tækjum með uppskrúfuðu verði. Eins legg ég áherzlu á, að ein yfirstjórn verði yfir útvarpinu, sem beri beina ábyrgð á fjárhagslegri starfrækslu þess. Heilbrigð fjármálastjórn ætti fremur að fást, ef ábyrgðin er ekki tvískipt.

Þá spurði hv. þm., hvort ég álíti samkv. 12. gr. frv., að einstakir menn mættu búa til útvarpstæki. Um þessa spurningu get ég sagt það, að 12. gr. bannar öðrum en einkasölunni einungis það, að flytja inn útvarpstæki. Einstakir menn mundu sennilega mega smíða tæki, er þeir nota sjálfir, en til sölu ekki, nema eftir samningi við einkasöluna.

Þá spurði hv. þm., hvort stj. ætlaði að setja verð tækja upp. Það er alls ekki meiningin að hafa neina verðhækkun á tækjum. En ég veit það, að þó einungis væri haldið núverandi verði, þá mundi þó fást álitlegur gróði fyrir einkasöluna, sem vitanlega gengi þá til greiðslu rekstrarkostnaðar útvarpsins að einhverju leyti.

Hv. þm. sagði að lögin frá í fyrra um sameining síma og pósts hefðu verið framkvæmd þannig, að pólitískum gæðingum stj. hefðu verið veitt þessi störf. Ég vil algerlega mótmæla því, að þetta sé rétt. Þau lög hafa ekki verið framkvæmd frekar en fyllsta ástæða hefir verið til. En auk þess eru þau lög á engan hátt sambærileg við þessi. Hér er ekki neinn starfsmaður ráðinn, nema útvarpsstjóri. Engum hefir því verið hægt að bola burt. Og það hefir heldur engum verið bolað burt óeðlilega með sameiningu póst- og símaembætta.