10.02.1930
Neðri deild: 20. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1774 í B-deild Alþingistíðinda. (2407)
68. mál, Útvegsbanki Íslands h/f
Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):
Það var eingöngu út af yfirlýsingu hv. þm. Dal., að ég kvaddi mér hljóðs. Hann sagði, að það væri rangt frá skýrt í nál. meiri hl. bankanefndarinnar, að stj. Íslandsbanka hefði verið beðin um yfirlit yfir reikning bankans síðastl. ár. (SE: Enginn bankastjóranna man eftir, að beðið hafi verið um þessa skýrslu). Ég skal þá lýsa því yfir, að á fundi í herbergi í Íslandsbanka bar ég fram þá ósk til bankastjóranna, að þeir létu bankanefndinni í té yfirlitsskýrslu um rekstur og reikning Íslandsbanka fyrir síðastl. ár.
Úr því ég er staðinn upp, vil ég ennfremur geta þess, að það er rangt, sem stendur í nál. minni hl. bankan. á þskj. 82, þar sem sagt er, að sendiherra Íslands í Khöfn, Sveinn Björnsson, hafi borið fram till. um opnun Íslandsbanka og varpað fram uppástungum um ákveðnar leiðir í málinu. Þetta er alrangt; hann hefir enga slíka till. borið fram.