29.03.1930
Neðri deild: 66. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 2246 í B-deild Alþingistíðinda. (2974)
369. mál, héraðsskóli
Einar Jónsson:
Það vildi svo til, að við báðum um orðið í sömu andránni, hv. þm. Borgf. og ég. Vakti fyrir mér að minna á það sama og hann, að ég áleit, að með samþ. þessara fjögurra héraðskóla mundi þessu máli ráðið til lykta fyrst um sinn og verða látið liggja í þögn nú.
En ef svo kann að vera álitið, að það þurfi að bæta við þessa fjóra héraðsskóla, þá vil ég minna á það, að það eru Rangæingar, sem standa næstir því að koma sinni skólahugmynd á framfæri. En sannast að segja bjóst ég við, að það yrði látið sitja fyrst um sinn við það, sem þegar er gert. Meiri tök hefðum við ekki efna okkar vegna nú í bili.
En þegar krafa kemur úr héraði, þar sem ekki er skólalaust, um það að fá nýjan skóla að auki, þá veit ég, að hv. þm. eru svo sanngjarnir, að þeir gæta betur að hugmynd Rangæinga, sem þeir hafa borið fyrir brjósti, áður en þeir samþ. aðrar kröfur. Hjá Rangæingum er málið bezt undirbúið, og þar eru stærstu samfelldu héruðin á landinu. Það er rangt hjá hv. flm., að þar fyrir norðan séu yfirleitt beztu skilyrðin fyrir skóla, ef á annað borð á að gera athugun á því máli að svo komnu.
Ég þarf svo ekki að eyða fleiri orðum að þessu, en styð till. og ummæli hv. þm. Borgf.