13.03.1930
Efri deild: 50. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 2288 í B-deild Alþingistíðinda. (3047)

117. mál, jarðræktarlög

Fjmrh. (Einar Árnason):

Það er aðeins stutt aths. Okkur hv. frsm. virðist bera nokkuð mikið á milli um það, hvað fjárframlög ríkissjóðs vegna jarðræktarlaganna hafi verið mikil undanfarin ár. Skal ég því gefa stutta skýrslu um það, til þess að koma í veg fyrir allan misskilning. Árið 1924 var ekkert ætlað í fjárl. til jarðabótastyrks, en greitt samkv. landsreikningunum 10.599,28 kr. Árið 1925 var áætlað í fjárl. 35.000,00 kr., en greiddar 50.000,00 kr.; árið 1926 áætlaðar 50.000,00 kr., en greiddar 83.006,57; árið 1927 áætlaðar 50.000,00 kr., en greiddar 179.071,20 kr.; árið 1928 áætlaðar 140 þús. kr., en greiddar 252.069,43 kr.

Ég hefi hér fyrir mér landsreikningana og byggi þessar tölur á þeim. Þær verða því ekki vefengdar. Þetta skiptir nú vitanlega ekki miklu máli í sambandi við þetta frv., sem nú liggur fyrir. Það er aðeins bending um, hvað þessi útgjöld vaxa óðfluga. Það er ekki að fullu uppgert, hvað greiða þarf samkv. jarðræktarlögunum á þessu ári, en eins og ég hefi áður sagt, get ég búizt við, að það komist upp í ½ millj. kr.