13.03.1930
Efri deild: 50. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 2292 í B-deild Alþingistíðinda. (3050)
117. mál, jarðræktarlög
Frsm. (Jónas Kristjánsson):
Ég skal aðeins geta þess, þar sem hv. þm. Snæf. tók fram, að þar sem frv. færi fram á aukin útgjöld, væri rétt samkv. þingsköpum að vísa því til fjvn., að ég átti tal um þetta við hæstv. fjmrh. einslega. Hann tók nú ekki neitt illa á þessu, en fór fram á, að lækkað væri gjald fyrir hvert metið dagsverk. Og það höfum við gert. Svo að ég held, að það gæti komið í stað þess að leita til hv. fjvn., þar sem hæstv. fjmrh. tók svona liðlega í málið.
Annars skal ég ekki orðlengja um þetta; málið er talsvert rætt. Ég verð að líta svo á, að því fé, sem varið er til landbúnaðarins nú, sé verulega vel varið. En ég ætla ekki að gera upp á milli sjávarútvegs og landbúnaðar. Þessir atvinnuvegir eru sem tvær hendur, er þurfa að vinna saman að heill og góðri afkomu þjóðarinnar, og þess vegna held ég sé ákjósanlegast að fara sem minnst út í metning þeirra á milli. En ég vík ekki frá því, að þetta fé, sem varið er til landbúnaðarins, þótt það sé talsvert mikið, það kemur aftur, enda þótt það verði ekki alveg strax.