16.04.1930
Neðri deild: 84. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1104 í B-deild Alþingistíðinda. (309)

1. mál, fjárlög 1931

Einar Jóansson:

Ég vil taka það fram, að þó að ég standi hér upp, ætla ég ekki að halda hér aðra eins rokna ræðu og hv. þm. Barð.

Um breytingar Ed. á fjárl. er það að segja, að ég kann yfirleitt ekki sem verst við þær, enda hefir hún ekki gengið inn á þá braut að lækka framlög til verklegra framkvæmda, nema ef telja skyldi styrkinn til Fiskifélagsins. D. hefir fellt nokkra persónulega styrki niður og bætt öðrum við, og yfirleitt skipta breytingar hennar ekki miklu.

Þó vil ég minnast á eina breytingu, sem Ed. hefir gert, sem ég felli mig ekki við, og það er að hækka styrkinn til stórstúkunnar úr 8.000 þús. kr. upp í 10.000 kr. Það er ekki svo, að ég sé að mæla ofdrykkju eða óreglu bót, en það eru hlutir, sem stórstúkan ræður ekki við, og til þess að standa í pólitískum „agitationum“ á hún ekki að fá opinberan fjárstyrk. Þegar á það er litið, að tekið er gjald af hverjum félaga, virðist þessi félagsskapur eiga að geta borið sig án svo stórfellds styrks úr ríkissjóði, nema þá að þetta fé fari til einstakra manna, eða sé varið til starfsemi, sem öðrum er til óþurftar (þefarastarfsemi).

Ed. hefir hækkað þennan styrk um 2.000 kr. Nú flyt ég brtt. um að færa hann aftur í sama horf og hann var í, er fjárl. fóru frá Nd. Væri þessu fé varið til að venja mig eða aðra á reglusemi, væri ekkert við því að segja, en þar sem það er annaðhvort ekki gert eða ekki hægt, þá mun ég halda strangt á þessari till.