25.01.1930
Neðri deild: 5. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1124 í B-deild Alþingistíðinda. (328)

12. mál, lántaka fyrir ríkissjóð

Fjmrh. (Einar Árnason):

Hér er alls ekki um missögn að ræða. En eins og ég tók fram í fyrri ræðu minni, þá eru vextirnir aðeins 1% hærri en í Englandsbanka, ef vextir þar ná 6%. Þegar þessi lánssamningur var gerður, voru vextir í Engl.banka 6½%, og mér þykir ótrúlegt, að einstakir menn hafi fengið lán í enskum bönkum á sama tíma fyrir lægri vexti en þetta. Ég held, að venjuleg viðskiptalánskjör hafi ekki verið lægri. Ég man ekki, hvað vextir Englandsbanka eru nú. (ÓTh: 4½%). Ef þeir eru nú 4½%, þá geta þetta ekki talizt háir vextir. Góðir fjármálamenn og kunnugir þessum efnum telja það góð kjör að fá fast viðskiptalán með 6% vöxtum. Ég blátt áfram trúi því ekki, að einstakir menn hafi fengið á sama tíma lán með 5% vöxtum. (ÓTh: Hvenær var lánið tekið?). Það var tekið 27. sept. síðastl.