06.02.1930
Neðri deild: 16. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 40 í D-deild Alþingistíðinda. (3313)

37. mál, björgunar- og eftirlitsskip við Vestmannaeyjar

Jón Auðunn Jónsson:

Ég vildi aðeins spyrja að því, hvort hæstv. dómsmrh. hefði kallað nokkuð á eftir mér áðan, er ég fór út úr deildinni, vegna þess að ég var kallaður í síma. (Dómsmrh.: Talaði hv. þm. nokkuð til stj.?) Ég sagði aðeins, að skipið „Kakali“ hefði verið togari. (Dómsmrh.: Ég svaraði því víst litlu). Mér var þó tjáð, að hæstv. ráðh. hefði kastað til mín einhverjum orðum, líklega ljótum, þar sem hann ekki hefir kjark til að endurtaka þau. Má vera, að ég geti fengið betri vitneskju um það og þá svarað þeim síðar.