03.02.1930
Neðri deild: 12. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1127 í B-deild Alþingistíðinda. (335)

12. mál, lántaka fyrir ríkissjóð

Fjmrh. (Einar Árnason):

Ég ætla ekki að deila við hv. þm. um það, hvort þessi lánskjör, sem hér er um að ræða séu óhagkvæm fyrir landið. Ég býst við, að það megi alltaf deila um það, þegar verið er að taka lán, hvort ekki hefði verið hægt að fá betri kjör.

Ég tók það fram um daginn út af aths. hv. 2. þm. G.-K., þegar hann sagðist hafa tekið á sama tíma lán í Englandi fyrir 5% vexti. (ÓTh: Það sagði ég aldrei). Jú, það sagði hv. þm.

Hann gleymdi að minnast á viðskiptagjaldið af þessu láni sínu, sem hann sennilega hefir aldrei tekið, en honum hefir ekki fundizt þörf á að skýra frá því. Sannast að segja væri fróðlegt að sjá þann samning, sem þessi hv. þm. þykist hafa gert á sama tíma og ríkissjóður tók sitt lán. En það er ekki nema gott og gleðilegt, ef hv. 2. þm. G.-K. hefir aðgang að lánum í útlöndum fyrir 5%. Ég vona, að hann láti ættjörðinni skína gott af, og hann ætli þá að koma sem frelsandi engill og útvega Íslandsbanka slík kostalán.

Ég held mér sé óhætt að segja, að það líti margir fjármálamenn svo á, að ekki sé hægt að fá svona lán, eins og hv. þm. talaði um, og að þetta lán, sem hér er um að ræða, sé alls ekki lakara en venjuleg viðskiptalán eru. Það skiptir ákaflega miklu um viðskiptagjaldið í þessu sambandi. Lánið var ekki notað fyrr en seinustu daga ársins, svo að viðskiptagjaldið byrjaði ekki fyrr. Það var ekki notað meira en gert var vegna þess, að ríkissjóður hafði í bili nóg fé til þess að annast þær greiðslur, sem á honum hvíldu. En hinsvegar geri ég ráð fyrir, að það þurfi að nota lánið bráðlega aftur að fullu.

Það, hvort lánið fengist framlengt, er ekkert aðalatriði fyrir stj. að fá fullt loforð um. Þau ummæli, sem að því lúta, eru að áliti stj. alveg fullkomið loforð og hún er alls ekki hrædd um, að lánið fáist ekki framlengt, ef á liggur. Það er ekki svo venjulegt, að bankar gefi út ótvíræðar yfirlýsingar um þessa hluti. Hinsvegar er líka ómögulegt að segja um það, hvort það kemur til þess, að stj. þurfi að fá lánið framlengt.