11.04.1930
Neðri deild: 77. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 92 í D-deild Alþingistíðinda. (3359)

363. mál, lækkun vaxta

2) Með svofelldri grg.:

Þó að ég álíti þetta mál ekki heyra undir Alþingi eða ríkisstj., heldur undir stj. þjóðbankans, að ákveða vexti í landinu, þá vil ég þó, með því að hæstv. stj. er í nánu sambandi við þjóðbankann, greiða þessari till. atkv. mitt og segi því já.