10.02.1930
Neðri deild: 19. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1129 í B-deild Alþingistíðinda. (341)
12. mál, lántaka fyrir ríkissjóð
Jón Auðunn Jónsson:
Ég hafði ekki hugmynd um það, þegar ég fór héðan laust fyrir kl. 12, að hér myndi hefjast fundur kl. 1. Dagskrá var ekki komin, þegar ég fór héðan, og gat ég því ekki vitað, hvaða mál myndu verða hér á dagskrá. En hinsvegar hafði ég gert brtt. við þetta frv., sem nú er í prentun. Brtt. mín er á þá leið að breyta 1. gr. þannig, að vextir megi ekki vera hærri en 5% af láni því, sem tekið verður.
Ég sé ekki, að það sé forsvaranlegt að taka lán með hærri vöxtum, þegar svo stendur á, að því láni, sem tekið er fyrir ríkissjóð, er varið nálega öllu til óarðberandi fyrirtækja og til veltufjár fyrir Landsbankann og Búnaðarbankann. Þetta er fé, sem ríkissjóður fær litla eða sumpart nær enga vexti af, en hér er um árleg útgjöld ríkisjóðs að ræða í vaxtamismun, svo há, að gæta verður allrar varúðar.
Ég vænti, að það takist að fá lán með ekki hærri vöxtum en þetta. Ég get ekki séð, að erfiðara verði fyrir stj. að taka lánið, þó að þetta ákvæði væri í lögunum; það myndi ekki geta staðið í vegi fyrir lántökunni. En ef erfitt yrði um lántökuna, gæti stj. bent á það, að lögin heimili ekki hærri vaxtakjör.
Ég veit ekki, hvort hæstv. forseti vill taka til greina skriflega brtt., og vildi því helzt fara þess á leit, að málið yrði tekið út af dagskrá.