15.04.1930
Efri deild: 78. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 119 í D-deild Alþingistíðinda. (3416)

154. mál, milliþinganefnd

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Ég vil geta þess út af brtt., sem hv. þm. Snæf. flytur, að ef hún verður samþ., verður þetta mál að fara til sameinaðs þings. En eins og menn vita, eru nú svo mörg mál á ferðinni í þinglokin, að tvísýnt getur orðið um afdrif þessa máls. Væri því æskilegast, að hægt væri að komast hjá því að tefja fyrir málinu.

Ég geri ráð fyrir, að ef þessi till. verður samþ. óbreytt, þá muni það heyra undir mig að skipa þessa nefnd. Ef það gæti orðið til samkomulags, skal því lýst yfir, að ég mun skipa einn mann af þessum þremur þann, sem stjórn Sjálfstæðisflokksins nefnir til þess.