16.04.1930
Sameinað þing: 9. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 163 í D-deild Alþingistíðinda. (3457)
524. mál, greiðsla á enska láninu
Fjmrh. (Einar Árnason):
Ég hefi það eitt að segja um þáltill. þessa, að stj. tekur henni vel og telur vel farið, að hún er fram komin. Það er nauðsynlegt að leitast fyrir um, hvort ekki sé hægt að fá lán með betri kjörum, svo að hagnaður geti orðið af því að greiða sem fyrst upp enska lánið.
Í sjálfu sér þarf ég litlu við að bæta frekar um þessa þáltill., en út af orðum, sem fallið hafa á milli hv. aðalflm. og hv. 1. þm. Skagf., þá vildi ég upplýsa það, að núverandi stjórn hefir orðið þess vör, að það hefir valdið allmiklum erfiðleikum um lántökur erlendis, hvernig gengið var frá enska láninu á sínum tíma. Hv. 1. þm. Skagf. heldur því fram, að tolltekjurnar séu ekki veðsettar, en stj. hefir fleiri skeyti í höndum frá erlendum fjármálamönnum, sem líta svo á, að tolltekjurnar séu veðsettar Englendingum.
Í síðastl. aprílmánuði spurðist stj. fyrir um lán í Ameríku. En lánskjör voru þar ekki aðgengileg, og var enska lánið þar þrándur í götu. Það var talið óhagstætt og að erfitt myndi fyrir Ísland að komast að góðum lánskjörum meðan það stæði. Þetta er því frekar athugavert, að ég veit ekki betur en það liggi fyrir opinberlega sú skoðun þess firma, sem lánið veitti, að það hefði loforð fyrir því að sitja fyrir þeim lánum, sem ríkissjóður síðar tæki, ef þetta firma byði sömu kjör og aðrir.
Ég ætla ekki að fara í neina deilu út af þessu láni. Ég ætla aðeins að segja það, sem hægt er að sanna með símskeytum, sem geymd eru viðvíkjandi þessu máli.