17.02.1930
Efri deild: 27. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1192 í B-deild Alþingistíðinda. (968)
5. mál, sveitabankar
Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):
Ég vil þakka hv. landbn. fyrir skjóta afgreiðslu þessa frv. og láta í ljós ánægju mína yfir því, að n. er meira sammála um þetta en í fyrra.
Ég get fallizt á brtt. á þskj. 113; þær eru mjög meinlausar og fjalla ekki um neitt aðalatriði. En hv. 4. landsk. hefir borið fram brtt. á þskj. 112 um að 2. málsgr. 14. gr. falli niður. Þessi hugsun hv. þm. minnir dálítið á deiluna um veð sjómanna, en ég vil benda hv. þm. á, að á þessu sviði er miklu minna um að gera en um veð sjómanna, eins og hann mun sjá á frv. þess efnis, sem fram kemur innan skamms, þó að ég hinsvegar fallist alveg á þá skoðun hv. þm., að ekki megi þrengja kosti sjómanna í þessu efni. En ég álít, að ákvæði 2. málsgr. 14. gr. geti hjálpað þeim, sem efnaminnstir eru, til að fá fé til þess að geta haldið sínum atvinnurekstri gangandi. Það er afarsjaldgæft, að kaup sé ekki goldið skilvíslega hjá bændum, og þess vegna mundi þetta ekki reka sig á hagsmuni verkafólks.
Hv. þm. sagði, að þetta ákvæði yrði til þess að rýra lánstraust bænda. En ég álít, að í reyndinni verði það einmitt til að auka lánstraust bænda, þ. e. a. s. gera þeim mögulegt að fá lán í sveitabönkunum. Hv. þm. sagði, að þetta þrengdi kosti fátækasta fólksins, en ég held, að það geri hið gagnstæða.
Hv. þm. var að lýsa eftir lánsstofnun fyrir smábátaútveginn. Ég geri ráð fyrir, að þingmenn Framsóknarflokksins í sjútvn. í Nd. beri fram frv. um slíka lánsstofnun, sem vonandi verður afgr.
Þá kem ég að brtt. hv. 1. þm. G.-K. á þskj. 120. Hv. þm. fylgdi þeim úr hlaði með allrækilegri ræðu, en hann sagðist ekki vilja eiga í neinu þrefi út af þeim, og ég get tekið alveg í sama streng. Ég vil ekki eiga í þrefi við hv. þm., þó að ég sé honum andstæður um allt, sem hann hefir lagt til þessara mála. Með þeirri skoðun, sem hann hefir á samvinnumálunum, er ekki annars að vænta. En út frá mínum skoðunarhætti hlýt ég að óska þess, að hv. d. fallist ekki á brtt. á þskj. 120.
Um 14. gr. urðu þeir loks sammála, hv. 4. landsk. og hv. 1. þm. G.-K. Hv. 1. þm. G.-K. kallaði greinina hv. 1. þm. G.-K. um að koma fyrir kattarnef byltingagrein.byltingagrein. Ég óska hv. 4. landsk. til lukku með að hann skuli vera samherji