16.04.1930
Efri deild: 82. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 542 í C-deild Alþingistíðinda. (988)

26. mál, hafnargerð á Sauðárkróki

Jónas Kristjánsson:

Hv. 2. þm. S.-M. kvartar æ undan því, að upplýsingar vanti í málinu. Þær eru þó allmiklar í grg. frv., og ef áhugi hefði verið fyrir að afla frekari upplýsinga, hefði hv. þm. verið innan handar að fá þær hjá kunnugum mönnum. En ég er hræddur um, að það hafi vantað áhugann.

Hv. þm. var í þessu sambandi að tala um tóbakseinkasölu. Ég vil út af því segja, að ég sé ekki nema einn kost við að taka upp það fyrirkomulag, þann kost, að tóbaksneyzlan verður minni, sökum stirðari afgreiðslu og fleiri annmarka á verzluninni. Hinsvegar hefir þetta í för með sér nokkra áhættu fyrir ríkissjóð og bindur mikið fé, og eru það hvorttveggja stórir ókostir. Ég er sannfærður um, að þeir verða vonsviknir, sem halda, að tóbakseinkasalan verði til að auka tekjur ríkissjóðs. En það er eitt girnilegt við að koma henni upp frá sjónarmiði vissra manna, að hæstv. stj. fær þarna fjöldamargar nýjar stöður til að úthluta gæðingum sínum