28.03.1931
Neðri deild: 36. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 621 í C-deild Alþingistíðinda. (1075)
23. mál, bygging fyrir Háskóla Íslands
Hannes Jónsson:
Ég ætla mér ekki að þreyta kappræðu um þetta mál, en mér fannst það koma berlega fram hjá hv. 1. þm. Reykv., að hann býst ekki við, að þessar 600 þús. kr. nægi til byggingarinnar. Hann sagði, að það mætti komast af með þetta. Það er hægur vandi að tala svona, en hugsa svo með sjálfum sér, að þetta verði bara aldrei gert.
Ég held, að ekki verði hægt að komast hjá því, að þessi bygging verði dýrari en þetta. Og ég sé heldur ekki neina knýjandi þörf til þess að fara að samþykkja neitt um þetta, þegar það eru að minnsta kosti þrjú ár, þangað til byrjað verður á verkinu. Er ekki betra að hefja á þessum þremur árum undirbúning málsins og fá í hendurnar betri gögn um það, hvernig skólinn á að vera og hvar hann á að standa. Ég sé ekki, að neinu sé spillt, þótt það dragist 2–3 ár að setja lög um þetta.