25.11.1933
Neðri deild: 19. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 90 í D-deild Alþingistíðinda. (1221)
37. mál, talstöðvar
Frsm. (Finnur Jónsson):
Í grg. hinnar upphaflegu þáltill. var skýrt frá því, hver nauðsyn það væri að reisa talstöðvar sem víðast um landið, sérstaklega í nánd við helztu verstöðvar og veiðisvæði. Einn hv. nm. í sjútvn. hefir átt tal við landssímastjóra um þetta mál og fékk hjá honum þær upplýsingar, að talstöð mundi verða reist á Siglufirði næsta sumar, og að búið væri að kaupa hana nú þegar. Ennfremur, að stuttbylgjustöð muni verða reist í Rvík í sambandi við loftskeytastöðina, og að talstoð mundi að líkindum verða fullgerð í Vestmannaeyjum á næsta ári. Samhliða þessum upplýsingum bárust sjútvn. till. frá skipstjórafélaginu í Rvík um birtingu veðurfregna. Þar sem hér var um að ræða svo skylt mál því, sem n. hafði með höndum, þótti henni rétt að sameina þau, og flytur hún því brtt. á þskj. 142 við upphaflegu tillgr. Þar er gert ráð fyrir, að stj. rannsaki, hvar hentugast sé að reisa talstöðvar, og leggi niðurstöðu þeirrar rannsóknar fyrir næsta þing ásamt áætlun um kostnað. Einnig er ætlazt til þess, að á næsta sumri verði reistar allt að þremur talstöðvum á þeim stöðum, þar sem þörfin er brýnust.
Sumir hv. nm. voru svo hræddir við hreppapólitík og að allt mundi kafna í togstreitu um stöðvarnar, ef þær yrðu ákveðnar í þál. þess vegna lætur sjútvn. það óbundið, hvar þær skuli reistar, að öðru leyti en því, að það skuli gert þar, sem nauðsynin er mest.
Ef slíkar talstöðvar eru reistar þar, sem rafmagnsstöðvar eru fyrir, þá kosta þær um mikið nauðsynjamál að ræða, er þess að vænta, að stj. noti þá heimild, sem henni verður fengin til slíkra framkvæmda.