30.11.1933
Neðri deild: 23. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 219 í D-deild Alþingistíðinda. (1615)

48. mál, samvinnufélagið

Finnur Jónsson:

Ég ætla aðeins að gera grein fyrir fyrirvara mínum við undirskrift nál. Ég er því yfirleitt meðmæltur, að ábyrgðir séu veittar til slíkra útgerð. Hinsvegar hefi Ég ekki komið auga á þá möguleika, sem haldið hefir verið fram, að Borgarnes hefði til þess að slík útgerð geti þrifizt þar. Þar vantar m. a. íshús til beitugeymslu og annað, sem þarf til þess að verulega hentugt sé að reka útgerð þar. Af þessum ástæðum er ég ekki með þessu máli.