30.11.1933
Neðri deild: 23. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 238 í D-deild Alþingistíðinda. (1635)
48. mál, samvinnufélagið
Finnur Jónsson:
Ég þyrfti nokkuð langan tíma, ef ég ætti að fara að svara öllu því, sem hv. þm. G.-K. sagði. En rómverskur hershöfðingi (ÓTh: Var það ekki íslenzkur landlæknir?) hafði það að reglu að gera aldrei það, sem óvinir hans vildu, að hann gerði, og slíkt hið sama ætla ég mér að gera. Með lýsingum sínum um breidd og dýpt skipa og þá ekki siður með fádæma svívirðingum um samvinnufélag ísfirðinga vill hann fá mig til málþófs við sig, af því að hann vill tefja það mál, sem er hér næst á dagskrá. Annars ferst hv. þm. G.-R. ekki að vera með þessar svívirðingar um samvinnufélag Ísfirðinga, því á sama tíma og samvinnufél. Ísfirðinga varð ríkissjóði skuldugt um rúmar 40 þús. kr. er talið, að félag það, sem hann er sjálfur óstarfhæfur og einskonar heiðursforseti fyrir, hafi safnað um 5 millj. lítt tryggðra eða ótryggðra skulda hér í bönkunum.