05.12.1933
Neðri deild: 26. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 649 í D-deild Alþingistíðinda. (1886)

53. mál, skilanefnd Síldareinkasölu Íslands

Finnur Jónsson:

Ástæðan fyrir því, að ég gerði þessa fyrirspurn, var fyrst og fremst sú, að mér var kunnugt um, að peningar þeir, sem síldareigendur fengu hjá einkasölunni út á síld, voru færðir í bókum hennar sem skuld hjá seljendum, en þeir hvergi kreditfærðir fyrir innleggi sínu. mér finnst sem sé, að stj. hefði átt að fylgjast með þessu, því að ekki verður annað sagt en að ósanngjarnt sé að fara að innheimta aftur þær 2 kr., sem síldareigendur fengu fyrir hverja síldartunnu.

Hvað snertir tap síldareinkasölunnar, þá má ekki tala um það eins og eitthvert einstakt tilfelli, án tillits til þess, að annar atvinnurekstur hafi tapað líka, þar sem það er vitanlegt, að tap á fisksölu og þorskveiðum varð mjög mikið, einmitt á þessu ári, og mörgum sinnum meira en tap síldareinkasölunnar, þó það kæmi öðruvísi niður.