18.11.1933
Neðri deild: 13. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 450 í B-deild Alþingistíðinda. (666)
20. mál, síldarbræðsluverksmiðja á Norðurlandi
Frsm. (Finnur Jónsson):
Sjútvn. hefir spurzt fyrir um það, hvort möguleikar myndu vera fyrir því að koma fyrirhugaðri síldarbræðsluverksmiðju svo snemma upp, að hún yrði starfhæf fyrir næsta síldveiðatímabil. Leitaði hún álits formanns verksmiðjustjórnar, sem taldi það mjög hæpið, að unnt yrði að koma því verki svo tímanlega í framkvæmd. Þá var og verksmiðjustjóra síldarverksmiðju ríkisins á Siglufirði send samskonar fyrirspurn í skeyti, og svarið við því var það, að hann teldi það alls ekki hægt.
Þá hefir sjútvn. athugað till. hv. þm. Borgf. Vill hún taka hana til greina að nokkru leyti. Vill hún leggja til, að leitað verði álits þeirra útgerðarmanna, er rekið hafa herpinótaveiðar síðastl. sumar. Hinsvegar telur n. ekki fært að taka þá með, er í hyggju kynnu að hafa að gera út næsta sumar. Það gæti orðið nokkuð breiður grundvöllur til að byggja á, jafnvel nokkurskonar þjóðaratkvæðagreiðsla. Eins telur n. ekki vert að taka þá með, sem einungis stunda reknetaveiðar, því þeir veiða eingöngu síld til söltunar, aldrei í bræðslu. N. hefir því samið skrifl. brtt. við brtt. hv. þm. Borgf. og leyfir sér að leggja hana fram. Óskar n. svo eftir því að frv., svo breytt, verði samþ. af hv. deild.