18.11.1933
Neðri deild: 13. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 452 í B-deild Alþingistíðinda. (671)
20. mál, síldarbræðsluverksmiðja á Norðurlandi
Frsm. (Finnur Jónsson):
Fyrirspurn hæstv. dómsmrh. get ég ekki svarað fyrir n. hönd, en það var álit hennar, að framkvæma skyldi bygginguna næsta sumar og með sem mestum hraða, ef takast mætti að fá hana tilbúna til notkunar á næsta síldveiðatímabili. En takist það ekki, sem nú þykir sýnt, þá verður þó að hraða verkinu svo, að víst sé, að hún verði tilbúin til notkunar fyrir síldveiðatímabilið 1935. Og til þess ætlast n. einhuga. Út af brtt. hv. þm. Borgf. vil ég segja það, að þeir reknetaveiðibátar, sem stundað hafa síldveiðar, eru bæði fáir og smáir og mundu alls ekki afla í bræðslu, þótt síldarbræðsluverksmiðja sé reist til viðbótar. Er því ástæðulaust að leita til þeirra um þetta.