10.12.1934
Neðri deild: 55. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2832 í B-deild Alþingistíðinda. (114)

Afgreiðsla þingmála

Forseti (JörB):

Það er rétt, að mál þetta er fyrir löngu komið frá n. og tilbúið til umr. Nú hefi ég lengstum, að ég ætla, haft það mörg mál á dagskrá, að henni hefir því nær aldrei verið lokið, og mjög hefir verið kallað eftir flestum þessum málum. Hinsvegar hefir dm. stundum fundizt fulllangar fundarsetur. (ÓTh: Það er nú ekki oft). En ég er reiðubúinn að láta þetta og önnur mál koma á dagskrá og lengja þá fundartíma sem þörf krefur, en þá kröfu geri ég, að þm. séu þá hér viðstaddir til þess að taka þátt í afgreiðslu mála. — Ég skal sjá um, að þetta mál komi á dagskrá og til umr. hér, því að hv. 11. landsk. hefir sýnt mikla þolinmæði. Hinu get ég ekki lofað, að það fái afgreiðslu á þessu þingi.