30.10.1934
Neðri deild: 23. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 948 í B-deild Alþingistíðinda. (1170)

26. mál, vinnumiðlun

Forseti (JörB):

Út af ummælum hv. þm. Vestm. vil ég taka það fram, að það er ekki óvenjulegt, að menn haldi áfram fundi, ef seint hefir gengið afgreiðsla mála.

Viðvíkjandi hinu atriðinu, hversu mikið þjóðþrifamál þetta mál sé, þá sé ég ekki ástæðu til að láta uppi skoðun mína um það. Um það munu þm. sjálfir dæma við afgreiðslu málsins. Mér ber að gæta þess, að taka málin fyrir, eftir því sem þau berast mér í hendur, og reyna að koma þeim áleiðis með afgreiðslu.