10.12.1934
Sameinað þing: 20. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2833 í B-deild Alþingistíðinda. (118)
Afgreiðsla þingmála
Ólafur Thors:
Ég vildi aðeins leyfa mér að minna hæstv. forseta á það, að snemma á þingi bárum við 3 þm., hv. 3. landsk., hv. þm. Borgf. og ég, fram þáltill. um gæzlu veiðarfæra á Faxaflóa, og vildi ég beina þeim vinsamlegu tilmælum til hæstv. forseta, að hann tæki málið á dagskrá núna einhvern næsta daginn.