31.10.1934
Neðri deild: 24. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 951 í B-deild Alþingistíðinda. (1182)

26. mál, vinnumiðlun

Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson) [óyfirl.]:

Ég óttast, að hv. 8. landsk. verði fyrir vonbrigðum í sambandi við brtt. þær, sem hann og hv. þm. Snæf. bera fram á þskj. 222. Ég álít þær ekki til bóta. Furða ég mig á því, að þeir, sem talað hafa um þann mikla kostnað, sem skellt væri á bæjarfél. með frv. mínu, skuli nú leggja til, að stofnaðar verði aðrar skrifstofur með sama verkahring. Vil ég í þessu sambandi minna á, hvernig nú er komið í Rvík. Bæjarstj. hefir sérstaka skrifstofu til að úthluta atvinnubótavinnu. Í öðru lagi heldur hún uppi ráðningarskrifstofu, sem ég held ekki, að sé til mikils gagns. Í þriðja lagi halda verkalýðsfél. uppi vinnumiðlunarskrifstofu í bænum. Þetta ástand er mjög óheppilegt. Ég óttast, að með því að samþ. þessar brtt., væri að ýmsu leyti stefnt í sömu átt.

Það er ekki rétt, sem hv. 8. landsk. sagði um brtt., að vinnumiðlunarskrifstofa ríkisins ætti samkv. þeim að úthluta atvinnubótavinnunni. Í 1. undirlið 2. gr. till. hans segir:

„Hlutverk vinnumiðlunarskrifstofu ríkisins skal vera: 1) Að gera till. til ráðningarskrifstofa kaupstaðanna um fyrirkomulag og úthlutun atvinnubótavinnu eða annarar vinnu, sem kostuð er af ríkissjóði. (GÞ: Ef hæstv. ráðh. vill lesa 3. lið 7. brtt., sér hann þetta skýrar). Já; þar segir svo: „Hlutverk hennar (ráðningarskrifstofunnar) skal vera: ... B. Að úthluta vinnu þeirri, sem kostuð er af bæjarsjóðum, svo og annari vinnu, er skrifstofunni kann að verða falið að úthluta, sbr. 2. gr., 1. lið.

Ég fæ nú ekki betur séð en að þarna geti orðið um árekstur að ræða milli ríkis og kaupstaða, eftir orðum sjálfstæðismanna. Ef vinnumiðlunarskrifstofa ríkisins gerir till. til ráðningarskrifstofu einhvers kaupstaðar, en hún fer ekki eftir, þá er þegar sköpuð misklíð. Ef hinsvegar ráðningarskrifstofan fer eftir till. vinnumiðlunarskrifstofunnar, þá er hún þar með gerð óþörf.

Get ég því ekki mælt með þessum brtt.