06.11.1934
Efri deild: 31. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 960 í B-deild Alþingistíðinda. (1211)
26. mál, vinnumiðlun
Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson) [óyfirl.]:
Þetta frv. hefir þegar verið allýtarlega rætt í hv. Nd., svo að ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða um það nú. Tilgangur frv. er að reyna að stuðla að því, að sú atvinna, sem á hverjum tíma fellur til á hverjum stað, skiptist sem jafnast niður á milli þeirra, sem vilja nota hana. Þessum tilgangi er hugsað að ná með því að hafa sérstaka skrifstofu, sem annaðist rannsókn um atvinnuleysi, fylgdist með atvinnuháttum í landinu og úthlutaði þeirri vinnu, sem til fellur. Um stj. þessarar skrifstofu er tekið fram í 3. gr. frv., að samtök verkamanna tilnefni einn mann í stj., samtök atvinnurekenda einn, viðkomandi bæjarstj. tvo menn og atvmrh. skipi svo oddamann. Um skipun í stj. slíkra skrifstofa tel ég réttast að taka sem fyllst tillit til þeirra aðilja, sem skrifstofurnar eiga að vinna fyrir. Þar sem hér er m. a. um að ræða skýrslusöfnun fyrir hið opinbera og úthlutun á vinnu fyrir fé, sem greitt er úr ríkissjóði til atvinnubóta, tel ég rétt, að ríkisstj. skipi oddamanninn í n.
Ég geri það svo að till. minni, að málinu verði að lokinni umr. vísað til allshn.