06.11.1934
Efri deild: 31. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 962 í B-deild Alþingistíðinda. (1214)

26. mál, vinnumiðlun

Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson) [óyfirl.]:

Það er vitaskuld rétt hjá hv. 1. þm. Reykv., að þetta frv., þó að l. verði, eykur ekki atvinnu í landinu. En tilgangur þess er að jafna þeirri vinnu, sem til fellur.

Hins vegar get ég ekki verið hv. þm. sammála um það, að neitt sé athugavert við það, þótt atvmrh. hafi heimild til að hlutast til um, að settar verði upp vinnumiðlunarskrifstofur í bæjum, jafnvel þó að viðkomandi bæjarstj. ekki óski þess, þar sem þess ber að gæta, að þessar skrifstofur eiga að úthluta atvinnubótavinnu og safna skýrslum um atvinnumálefni fyrir hið opinbera.

Í fjárlagafrv., sem fyrir Alþ. liggur, er gert ráð fyrir, að ríkið leggi fram 500 þús. kr. til atvinnubóta á næsta ári, gegn tvöföldu framlagi á móti frá kaupstöðunum. Það er ekki nema eðlilegt og sjálfsagt, þó að ríkisstj. vilji hafa hönd í bagga um eftirlit með því, að fjárframlag þetta komi að tilætluðum notum og framlög frá kaupstöðunum verði greidd á móti framlaginu úr ríkissjóði.

Þá var hv. þm. mjög undrandi yfir því, að frv. skyldi vera borið fram einmitt nú. Það er ákaflega eðlilegt, að það er borið fram nú, fyrst og fremst af því, að nú er mikið atvinnuleysi við að stríða, og í öðru lagi vegna þess, hvernig þessum málum er nú komið hér í Rvíkurbæ. Ég veit ekki betur en að hér í bænum sé ein skrifstofa, sem bærinn hefir sett upp, sem úthlutar atvinnubótavinnu. Ennfremur er ráðningarskrifstofa, sem bærinn hefir einnig sett upp. Þá er hér einnig vinnumiðlunarskrifstofa, sem verklýðsfélög hafa sett upp. Og í 4. lagi er hér vinnumiðlunarskrifstofa kvenna, sem hjálpar til að greiða fyrir atvinnu kvenna. Ég álít óheppilegt að hafa vinnumiðlunarskrifstofurnar svona margar, og mér virðist það eðlilegt, að aðiljar telji brýna þörf á því, að í stað þess að halda áfram með 4 slíkar skrifstofur verði þetta sameinað undir eina skrifstofu, og að þeir aðiljar, sem sérstakra hagsmuna hafa að gæta í sambandi við þessi mál, tilnefni fulltrúa í stj. eftir þeim reglum, sem frv. gerir ráð fyrir.