10.12.1934
Sameinað þing: 20. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2841 í B-deild Alþingistíðinda. (167)
Kosningar
Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson):
Hv. þm. G.-K. ætti að geta skilið, að ég vil ekki gefa yfirlýsingu án þess að ráðfæra mig við minn flokk, því ég vil ekki geta þær yfirlýsingar, sem ég get ekki staðið við. Hv. þm. G.-K. þurfti 10—12 daga til þess að ráðfæra sig við sinn flokk, og ég lasta það ekki; það er mjög virðingarvert. En hv. þm. getur ekki ætlazt til þess, að ég sé nein ljósmóðir við þessa fæðingu, sem nú stendur fyrir dyrum. Það er engin ástæða til, að ég sé þar neinn aðstoðarmaður.