01.11.1934
Neðri deild: 25. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1253 í B-deild Alþingistíðinda. (1831)
5. mál, útflutningsgjald
Forseti (JörB):
Mér hefir borizt skrifl. brtt. frá hv. 3. landsk., svo hljóðandi:
„Við b-lið. Málsgr. orðist svo:
Af hverjum 1000 kg. af fiskiúrgangi, hausum og beinum, þurrkuðum og óunnum, kr. 2.00“. Brtt. þessi er of seint fram komin og auk þess skrifl. og verður því að leita tvöfaldra afbrigða frá þingsköpum, til þess að hún megi koma hér til umr. og atkvgr.