21.11.1934
Neðri deild: 42. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1351 í B-deild Alþingistíðinda. (1942)

33. mál, skipulagsnefnd atvinnumála

Forseti (JörB):

Svo er fyrir mælt í lögum um þingsköp Alþ., að deildin sé ályktunarfær, þegar meira en helmingur þm. sé á fundi og greiði þar atkvæði, og að ályktun sé lögmæt, þegar meira en helmingur þeirra fundarmanna, sem atkvæðisbærir eru, gr. henni atkvæði. Nú er deildin því ályktunarfær, ef 17 menn eru á fundi og gr. atkv. Hér hafa nú gr. atkv. 23 menn, og þar af 15 með brtt., og verður hún því að teljast löglega samþ. Um hitt ákvæðið, hvenær þm. hefir fært nægar ástæður fyrir því, að gr. ekki atkv., fer aðeins eftir því, hvaða ástæður forseti metur gildar. En verði ágreiningur milli forseta og hlutaðeigandi þm. um. hvort ástæðurnar skuli metnar gildar, má skjóta því undir úrskurð d. En hér er ekki um slíkan ágreining að ræða. Þeir hv. þm., sem ekki gr. atkv., hafa gert þá grein fyrir því, sem ég hefi metið gilda, og er þessi afgr. því fullkomlega lögmæt.