21.11.1934
Neðri deild: 42. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1354 í B-deild Alþingistíðinda. (1952)
33. mál, skipulagsnefnd atvinnumála
Forseti (JörB):
Mér virðist, að því fjær sé markinu því meira sem um þetta er rætt. Dæmin, sem tekin hafa verið í þessu sambandi, sanna það bezt. Hv. 8. landsk. tók það dæmi, að 30 sætu hjá við atkvgr., 2 greiddu atkv. Með, en 1 á móti 3 af 92 er nú ekki meiri hl. (GÞ: Ekki heldur 15). En 15+8 er meiri hl., því að þátttaka í atkvgr. er bundin við, að menn greiði atkv. með eða móti. Þeir, sem hjá sitja, teljast ekki taka þátt í atkvgr.
Út af aðferðinni við þessa atkvgr. er þess að geta, að formaður Sjálfstæðisflokksins lýsti yfir afstöðu Sjálfstæðisflokksins til málsins, en hv. fjmrh. lýsti yfir afstöðu Framsóknarflokksins; skírskotuðu sumir þm. til þessa, en aðrir ekki, og tók ég það gilt, þar sem og engin krafa kom fram um það, að gerð yrði frekari gangskör að þessu. Samþykktin er í fyllsta máta lögleg, en ef hv. þm. hafa gaman af að ræða þetta og þykjast eiga rétt á að lyfta sér upp við þær umr. eftir vel unnið dagsverk, þá er það mér að meinalausu.