07.12.1934
Neðri deild: 53. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1389 í B-deild Alþingistíðinda. (1983)
33. mál, skipulagsnefnd atvinnumála
Forseti (JörB):
Ég man ekki til, að ágreiningur hafi orðið um þetta ákvæði síðan ég tók sæti í þessari hv. d. Ég lít svo á, að samkv. orðalagi þessarar greinar gildi sama regla, hvort sem tillaga um að slíta umræðum kemur frá forseta eða 6 þingmönnum. Upphaf greinarinnar hljóðar svo:
„Ef umræður dragast úr hófi fram, getur forseti stungið upp á, að þeim sé hætt, og sker þingdeildin úr því umræðulaust“. — Þetta ákvæði er alveg skýlaust. Svo kemur næsti málsliður: „Sömuleiðis geta 3 þingmenn í efri deild, 6 í neðri deild og 9 í sameinuðu þingi krafizt þess, að greidd séu atkvæði um, hvort umræðum skuli lokið. Nöfn þeirra þingmanna skulu lesin upp og rituð í gerðabókina“. — Hér er svo náið samband á milli, að það virðist alveg tvímælalaust, að ætlazt sé til, að deildin skeri úr í báðum tilfellum.