07.12.1934
Neðri deild: 53. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1390 í B-deild Alþingistíðinda. (1984)
33. mál, skipulagsnefnd atvinnumála
Ólafur Thors:
Það er augljóst, að 6 þingmenn úr neðri deild geta ekki krafizt niðurskurðar á umræðum, nema því aðeins, að umræður hafi dregizt úr hófi fram. En ég lít svo á, að það sé hlutverk forseta, en eigi þingdeildar að meta, hvort umr. hafa dregizt úr hófi. Það er skylda forseta að gæta þess, að þingsköp séu eigi brotin, og ef hann lítur svo á, að umræður hafi í þessu tilfelli dregizt úr hófi fram, er eðlilegt, að hann úrskurði, að atkvgr. skuli fara fram. En ef hann hinsvegar lítur svo á, að slíku sé ekki til að dreifa, þá ber honum að girða fyrir það, að þingmeirihluti geti brotið þingsköp með því að beita meirihlutavaldi sínu. Vil ég því leggja á hæstv. forseta þá skyldu að úrskurða, hvort umr. í þessu máli hafi farið fram úr hófi.