07.12.1934
Efri deild: 55. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1941 í B-deild Alþingistíðinda. (2467)

149. mál, útsvar

Frsm. (Bernharð Stefánsson):

Eins og hv. þdm. er kunnugt, þá byggist þetta frv. algerlega á frv. því, sem nú var hér síðast til umr., um tekju- og eignarskatt. Ég held því, að það væri rétt að láta afgreiðslu þess bíða þangað til hitt frv. er orðið að lögum, en það á eftir að fara til Nd. aftur. En ef þetta frv. verður samþ. hér nú, þá er það orðið að lögum. Og þau lög verða alveg þýðingarlaus, ef frv. um tekju- og eignarskatt verður ekki afgr. sem lög frá þinginu. Ég held það færi því bezt á því að láta þetta frv. bíða eftir úrslitunum um hitt í Nd.