08.11.1934
Neðri deild: 31. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1804 í B-deild Alþingistíðinda. (2488)

81. mál, hafnargerð á Hornafirði

Frsm. (Jóhann Jósefsson):

Sjútvn. hefir haft þetta mál til meðferðar og kynnt sér álit vitamálastjóra um það. Eins og kunnugt er, þá hefir vitamálastjórinn nokkurskonar framkvæmdarvald f. h. ríkisstj. og er hennar höfuðráðunautur í hafnarmálum. N. er sammála um, að þessarar hafnarbótar er þörf, sem um ræðir í frv. Hún álítur, að Hornafjörður — fyrir margra hluta sakir, og þó kannske einkum vegna fiskiveiðanna — gæti orðið mjög byggilegur, ef höfnin yrði lagfærð. Hinsvegar getur n. ekki fallizt á, að þessi hafnargerð sé þess eðlis, að víkja beri frá þeirri reglu, sem nú hin síðari árin hefir verið viðtekin að því er snertir framlög ríkissjóðs til hafnargerða. Þó vill hún ganga eins langt eins og lengst hefir verið gengið áður í till. um styrkveitingar til hafnargerða, að undanskildum hafnarbótunum í Borgarnesi; til þeirra mun framlag ríkissjóðs hafa numið helmingi kostnaðar. Í þessu frv. er farið fram á, að ríkið leggi fram helming kostnaðar til hafnargerðar á Hornafirði, en n. vill leggja til, að þessi hafnargerð sé kostuð að 2/5 af ríkinu, og flytur brtt. í þá átt. Við þá breyt., að ríkissjóður leggi fram 2/5 kostnaðar í stað helmings, raskast hin ákvæði frv. um upphæð þeirrar ábyrgðar, sem ríkisstj. á að veitast heimild til að takast á hendur vegna þessarar hafnargerðar. Eftir frv. á ríkið að leggja fram helming áætlunarkostnaðar, eins og ég hefi áður tekið fram, eða 65 þús. kr., og ríkisstj. heimilað að ganga í ábyrgð fyrir öðrum 65 þús. kr. En samkv. brtt. n. er lagt til, að til hafnargerðarinnar sé lagður fram styrkur, er nemi 2/5 kostnaðar, sem eftir áætluninni verður 52 þús. kr. Hinsvegar sé heimiluð ábyrgð fyrir 78 þús. kr., í stað 65 þús. kr.

Önnur breyt. leggur n. til, að gerð verði á frv., sem sé sú, að aftan við 6. gr. verði bætt ákvæði, sem venjulegt er að hafa í hafnarlögum slíkum sem þessum, um að hreppsnefnd sé heimilt að taka eignarnámi lönd, sem liggja að höfninni og nauðsynleg kunna að verða rekstri hennar, auðvitað að tilskildu samþykki atvmrh.

Með þessum breyt. leggur n. til, að frv. verði samþ.