12.11.1934
Neðri deild: 34. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1957 í B-deild Alþingistíðinda. (2569)
124. mál, hlutafjárframlag fyrir h/f Skallagrím í Borgarnesi
Bjarni Ásgeirsson:
Ég vil þakka hv. samgmn. fyrir meðferð hennar á þessu frv., og get jafnframt lýst yfir því f. h. okkar flm. og stjórnar útgerðarfél. Skallagríms, að við sættum okkur að miklu leyti við þær brtt., sem fram hafa komið við frv. — Þó verð ég að segja það, að ef við ættum að velja á milli brtt. hv. samgmn. og brtt. frá hv. þm. Snæf. og Barð., um það, á hvern hátt yrði séð fyrir ferðum skipsins til Breiðafjarðar, þá held ég, að við mundum fremur hallast að brtt. hinna síðarnefndu á þskj. 303, með viðbótartill. á þskj. 403. — Hér er að vísu ekki um stóran mismun að ræða, sem skiptir miklu máli, en ég mun greiða þeim brtt. atkv.
Um síðari brtt. hv. samgmn. á þskj. 364, þess efnis, að eigi megi greiða hluthöfum arð af hlutafé þeirra í félaginu meðan ríkið stendur í ábyrgð fyrir félagið, býst ég sömuleiðis við, að stjórn útgerðarfélagsins hafi ekkert við að athuga. Vænti ég því, að frv. verði samþ.