03.11.1934
Neðri deild: 27. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1823 í B-deild Alþingistíðinda. (2574)

83. mál, útvarpsrekstur ríkisins

Forseti (JörB):

Mér hefir borizt skrifl. brtt. við f-lið 4. brtt. á þskj. 279, um að niður falli úr liðnum orðið „síðar“. Þar sem brtt. þessi er of seint fram komin og auk þess skrifleg, verður að veita tvenn afbrigði til þess að hana megi taka til meðferðar.