27.10.1934
Neðri deild: 21. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1872 í B-deild Alþingistíðinda. (2813)
71. mál, fiskimatsstjóri
Frsm. (Jóhann Jósefsson):
Sjútvn. hefir haft þetta mál til meðferðar og samþ. að leggja til, að það gangi fram.
Hér þarf ekki að fara út í nein rök að því, hversu nauðsynlegt sé að skerpa eftirlit með verkun fisks og mati hans. Það var gert við 1. umr. málsins, og svo hefir líka ýmislegt það að borið í seinni tíð, sem gerir nauðsynlegt að viðhafa einhverjar skynsamlegar ráðstafanir til þess að bæta úr matinu.
Sá maður, sem á að hafa þetta starf með höndum, sem um ræðir í frv., hefir vitaskuld ákaflega mikið vald og mikla ábyrgð. Og n. vill sérstaklega benda á það, að það þarf mjög að vanda val á matsstjóra. Hann verður bæði að hafa góða þekkingu á fiskverkun og helzt líka nokkra þekkingu á verzlun með fisk.
Nú hefir það komið til, sem ekki virðist neitt fjarri, að haldin yrðu árleg námskeið fyrir fiskimatsmenn til þess að mennta þá í sinni grein. Þá lægi náttúrlega næst, að matsstjórinn stæði fyrir þess háttar námskeiði.
Í 1. gr. frv. er talað um það, að matsstjóri skuli setja fiskimatsmönnum og yfirfiskimatsmönnum reglur til þess að vinna eftir. En n. þótti ekki nægilega skýrt kveðið á um það, að fiskimatsmönnum skyldi skylt vera að fara eftir því, sem matsstjóri leggur til. Þess vegna hefir n. lagt til eina brtt., sem prentuð er með nál. á þskj. 197, sem sé þá, að bætt verði við 1. gr. 4. málsgr., þar sem segir, að matsstjóri setji fiskimatsmönnum reglur: „Skylt er öllum fiskimatsmönnum og yfirfiskimatsmönnum að hlýða fyrirskipunum matsstjóra að því er starf þeirra snertir“, þ. e. við mat og útskipun, frágang í skipi og þar að lútandi. — virðist mér svo ekki ástæða til að fara fleiri orðum um frv. að svo komnu.