27.10.1934
Neðri deild: 21. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1873 í B-deild Alþingistíðinda. (2814)
71. mál, fiskimatsstjóri
Ólafur Thors:
Ég vil leyfa mér að þakka hv. sjútvn. fyrir góðar undirtektir í þessu máli. Út af þeirri brtt., sem n. flytur á þskj. 197, vil ég segja það eitt, að ég tel fyrir mitt leyti, að frv. kveði nægilega skýrt að í þessum efnum. En að till. er fram komin, sýnir nú hinsvegar það, að aðrir líta öðruvísi á, og þar með er sjálfsagt að samþ. hana, því að hún raskar á engan hátt efni frv.