17.12.1934
Neðri deild: 62. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2278 í B-deild Alþingistíðinda. (2949)
106. mál, vélgæsla á mótorskipum
Forseti (JörB):
Ég hefi reynt að kynna mér þetta mál eftir föngum, og eftir þeim upplýsingum, sem ég hefi fengið, virðist mér, að úrslit málsins geti ráðið allmiklu um öryggi manna á sjónum og þeirra verðmæta, sem hér koma til greina. Sú rökstuðning hv. 2. þm. Árn., að sá maður, sem fær sé um að fara með 300 hestafla vél, hljóti einnig að vera hæfur til þess að fara með 400 hestafla vél, missir marks, því að vitanlega má þá færa þetta takmark upp á við koll af kolli, allt til stærstu skipa. Ég byggi mína skoðun fyrst og fremst á áliti þeirra trúnaðarmanna stj., sem hafa það starf með höndum að líta eftir skipum og fartækjum, en þeir mæla stranglega á móti því, að hámarkið sé hærra en í þessari brtt. greinir og telja, að með því væri dregið úr öryggi manna á sjónum og að af því gæti leitt fjármunatjón. Sömu skoðunar er forstöðumaður þess skóla, sem á að kenna þeirri stétt manna, sem hér kemur til greina. Enn má nefna þá, sem hafa á hendi vátryggingu þessa skipastóls, en þeir halda því fram, að þetta geti haft meiri áhrif á vátryggingargjöldin en menn geri sér grein fyrir. Ég mun því samkv. þeim gögnum, sem ég hefi hér gert grein fyrir, greiða atkv. með meiri hl. sjútvn. og segja já.