13.11.1934
Neðri deild: 35. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2042 í B-deild Alþingistíðinda. (2958)
109. mál, dragnótaveiðar í landhelgi
Jóhann Jósefsson:
Ég sé enga ástæðu til að taka málið af dagskrá, nema þá, sem þeir hafa, er tefja vilja framgang l. Hér hrúgast nú sýnilega að svo mikið af málum, að vandséð verður um afgreiðslu þeirra allra. Er ég því mótfallinn þeirri till., að málið verði tekið af dagskrá.