24.11.1934
Neðri deild: 45. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2286 í B-deild Alþingistíðinda. (3039)

148. mál, stimpilgjald

Bjarni Ásgeirsson:

Mér hefir virzt, að sá háttur hafi verið upptekinn við atkvgr., þegar eitthvað hefir vantað í d., að jafnmargir hafa setið hjá úr andstöðuflokknum eins og þeir voru margir, sem vantaði. Ég vil benda hæstv. forseta á, fyrst þessi regla hefir verið tekin upp, að nota hana áfram og þá m. a. í þetta skipti.