11.12.1934
Neðri deild: 56. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2061 í B-deild Alþingistíðinda. (3151)
130. mál, vátryggingar opinna vélbáta
Jóhann Jósefsson:
Það er í stuttu máli sagt, að hv. Ed. færði þetta frv. mjög úr horfi, en sjútvn. hefir fært það aftur í sama horf og var að mestu leyti, en hefir þó tekið upp í frv. till. frá hv. þm. V.-Ísf., sem gerir frv. að vísu rýmra, eða ekki eins harða kröfu um skylduvátryggingu og var í frv.