28.11.1934
Neðri deild: 47. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2363 í B-deild Alþingistíðinda. (3461)
150. mál, fiskimálanefnd
Jóhann Jósefsson:
Ég hafði komið með till. um að vísa þessu máli til sjútvn. Eins og kunnugt er hefir þetta mál ekki verið athugað í n., eins og venja er til um þau mál, sem vísað er til n. En með því að hæstv. forseti hefir lagt mikla áherzlu á það sjálfur, að þó að þessu máli yrði ekki vísað til n., þá verði það athugað rækilega milli 2. og 3. umr. af sjútvn., vil ég minna á það, að það er ekki tilgangur okkar, sem höfum viljað vísa því til n., að tefja fyrir málinu. Ég mun því taka till. aftur um að því sé vísað til sjútvn., en þó með þeim forsendum, að málið fái rækilega athugun af n.