05.12.1934
Neðri deild: 51. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2367 í B-deild Alþingistíðinda. (3621)

150. mál, fiskimálanefnd

Ólafur Thors:

Það er einungis út af því, sem hæstv. atvmrh. beindi til mín um það, að ekki yrðu háðar umr. úr hófi fram, sem ég vil taka það fram, að ég get enga ábyrgð tekið á því, hvað mínir flokksbræður gera í þessu efni. Ég fyrir mitt leyti sé ekki ástæðu til að tala langt mál, af því að ég er þegar búinn að setja fram mína skoðun, en það getur vitanlega margt komið fyrir, sem getur mér tilefni til þess að taka til máls.