07.12.1934
Neðri deild: 53. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2401 í B-deild Alþingistíðinda. (3633)
150. mál, fiskimálanefnd
Jóhann Jósefsson:
Ég get ekki látið hjá líða að taka það fram, að þessar lýðræðishugmyndir hv. þm. V.-Ísf. hljóma alveg eins og þegar barið er í tóma tunnu, því að hann flutti þær hér í tómum þingsalnum, svo að segja yfir auðum bekkjum.
Ég vil einnig taka það fram, að mér finnst hæstv. forseti þessarar hv. d. gera lítið til þess að efla virðingu hv. þings, þegar hann leggur blessun sína yfir það, að hér sé rætt mál, sem mér virðist allir vera sammála um, að sé eitthvert hið allra þýðingarmesta, sem hv. þing hefir nú með höndum, yfir svo að segja auðum stólum. Ég hafði gert mér hærri vonir um vilja hæstv. forseta til þess að efla virðingu hv. þings. Það er liðið langt fram á nótt og flestir flúnir, en stjórnarliðinu hefir orðið að smala út um allan bæ, til þess að það gæti verið hér til taks, ef til atkvgr. kæmi um þetta mál.
Hv. þm. V.-Ísf. talaði mikið um lýðræði í þessu máli, en aðferð hæstv. forseta í þessu efni hendir ekki á það, að þessu máli sé fyrirhugað að vera rætt á lýðræðislegan hátt; þess vegna þykir hæstv. forseta það gott, að umr. um þetta mál sé haldið áfram, enda þótt 3/4 hv. þdm. séu fjarverandi.