07.12.1934
Neðri deild: 53. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2402 í B-deild Alþingistíðinda. (3634)

150. mál, fiskimálanefnd

Forseti (JörB):

Mér er ekki ljóst, hvað hv. þm. Vestm. ætlar forseta að gera hér. Ég hefi gefið einum hv. þm. fjarvistarleyfi.

Hv. þm. Vestm. kallar eftir því, að málið verði afgr. Hvernig má það verða, án þess að fundir séu haldnir? Hann getur beint ásökunum sínum til annara, sem tefja hér störf.