17.10.1934
Efri deild: 13. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2474 í B-deild Alþingistíðinda. (3732)

69. mál, eftirlit með sjóðum

Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson):

Ég tel sjálfsagt, að þetta frv. gangi til n. Vil ég upplýsa það í því sambandi, að samkv. þál. frá vetrarþinginu 1933 hefir fjmrh. lagt fyrir hagstofuna að safna skýrslum um alla opinbera sjóði. Enn eru þær skýrslur ekki komnar allar, en þó er nokkuð komið. Tel ég sjálfsagt, að n., sem fær þetta mál til athugunar, kynni sér, hversu langt sú skýrslusöfnun er komin.